Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 23. september 2019 20:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þýskaland: Frábær mörk í jafntefli Wolfsburg og Hoffenheim
Sebastian Rudy skoraði fyrsta mark Hoffenheim á útivelli á þessari leiktíð.
Sebastian Rudy skoraði fyrsta mark Hoffenheim á útivelli á þessari leiktíð.
Mynd: Getty Images
Wolfsburg 1 - 1 Hoffenheim
0-1 Sebastian Rudy ('6 )
1-1 Admir Mehmedi ('36 )

Lokaleik 5. umferðar í þýsku Bundesliga var rétt í þessu að ljúka þegar Wolfsburg tók á móti Hoffenheim.

Wolfsburg gat með sigri komist upp að hlið Bayern Munchen í 2. sæti deildarinnar. Á 6. mínútu leiksins skoraði Sebastian Rudy, sem var á mála hjá Bayern fyrir tveimur leiktíðum, fyrsta mark leiksins. Markið var einkar glæsilegt en Rudy hitti boltann mjög vel eftir að Pavel Kaderabek skallaði boltann til hans.

Markið var fyrsta mark Hoffenheim á útivelli í vetur en fyrir leikinn var liðið það eina í deildinni án marks á útivelli.

Hálftíma síðar jafnaði Admir Mehmedi leikinn fyrir Wolfsburg og reyndust það einu tvö mörk leiksins. Wout Weghorst átti frábæra sendingu inn á Mehmedi sem kláraði með góðu skoti. Falleg mörk í Bundesliga í kvöld. Mörkin má sjá eftir rúma mínútu og tæpar þrjár mínútur í spilaranum hér að neðan.



Þetta var 9. stig Wolfsburg í deildinni og situr liðið í 8. sæti. Hoffenheim er með fimm stig í 11. sæti.

Athugasemdir
banner
banner