Í kvöld fer fram verðlaunahátið FIFA, FIFA Best Awards, þar sem verðlaunað er fyrir besta leikmann í heimi, þjálfara, markmann. Allt bæði í karla og kvennaflokki.
Liverpool er með þrjá fulltrúa á hátíðinni, Alisson, Virgil van Dijk og Jurgen Klopp.
Jurgen Klopp segir í viðtali við LFC TV að hann hafi verið í veseni með hvernig hann ætti að klæða sig fyrir kvöldið og þegar hann spurði van Dijk þá var svarið einfalt. „Hann sagði mér að fara í smóking svo ég fór í það að útvega svoleiðis, við sjáum til hvernig það kemur út."

Klopp sagði þá að þetta kvöld væri pínu furðulegt þar sem Liverpool mætir MK Dons í 32-liða úrslitum Deildabikarsins á miðvikudagskvöld, hann sé einungis með hálfan hug við kvöldið í kvöld.
"Virgil told me I have to wear a tuxedo, so I tried to find one!"@VirgilvDijk and the boss ahead of tonight's #FIFAFootballAwards 🙌
— Liverpool FC (@LFC) September 23, 2019
Athugasemdir