Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. október 2018 19:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Aubameyang tók fram úr Gylfa
Mynd: Getty Images
Við sögðum frá því fyrir landsleikjahlé að Gylfi Þór Sigurðsson væri efstur á styrkleikalista Sky Sports yfir heitustu leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir.

Gylfi hefur verið að spila virkilega vel með Everton á þessu tímabili og verið besti leikmaður liðsins.

Sky Sports heldur úti styrkleikaröðun yfir þá leikmenn sem eru að spila best í ensku úrvalsdeildinni en eftir að hafa setið í efsta sæti í landsleikjahléinu er Gylfi núna í öðru sæti.

Á toppnum er Pierre-Emerick Aubameyang, sóknarmaður Arsenal. Aubameyang kom inn á sem varamaður og hjálpaði Arsenal að leggja Leicester að velli í gær. Hann skoraði tvennu.

Gylfi er í öðru sæti og Eden Hazard er í þriðja. Jóhann Berg Guðmundsson er kominn í 18. sæti eftir að hafa verið í 11. sæti.

Smelltu hér til að sjá listann.
Athugasemdir
banner
banner
banner