Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. október 2018 15:00
Elvar Geir Magnússon
Bielsa: Ómögulegt að sjá ekki vandamál
Marcelo Bielsa, stjóri Leeds.
Marcelo Bielsa, stjóri Leeds.
Mynd: Getty Images
Marcelo Bielsa stjóri Leeds segir að liðið sé með vandamál. Hann segir að liðið hafi misst af tækifæri til að taka stjórnina á toppi Championship-deildarinnar eftir aðeins einn sigur í síðustu fimm leikjum.

Leeds var á eldi í upphafi tímabils og náði í fimm sigra og eitt jafntefli í sex leikjum. En liðið hefur farið illa með færi og runnið niður í fjórða sætið.

„Við höfum aðeins unnið tvo sigra í síðustu átta leikjum. Það er ómögulegt að sjá ekki vandamál. Ef við værum með fjóra sigra í stað tveggja værum við á toppnum," segir Bielsea.

„Við erum að reyna að greina vandamálið því þetta þarf að leiðrétta. Við þurfum að breyta þessu skriði og finna út ástæðu þess að við erum ekki að vinna leiki."

„Ég tel að færanýtingin sé helsta ástæðan. Í upphafi tímabils þurftum við tvö til þrjú færi til að skora en nú þurfum við fimm til sex."

Bielsa segir að leikstíll Leeds snúist um sköpun en ekki baráttu.

„Við erum í öðru sæti yfir mörk skoruð en erum í fyrsta sæti yfir klúðruð færi. Næsta lið á eftir okkar klúðrar aðeins 50% af þeim færum sem við klúðrum. Við þurfum að bæta nýtinguna því andstæðingarnar þurfa að gera minna en við til að skora," segir Bielsea.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Ipswich Town 43 26 11 6 85 53 +32 89
2 Leicester 42 28 4 10 79 38 +41 88
3 Leeds 43 26 9 8 76 34 +42 87
4 Southampton 42 25 9 8 84 54 +30 84
5 West Brom 43 20 12 11 66 42 +24 72
6 Norwich 43 21 8 14 76 60 +16 71
7 Hull City 42 18 11 13 62 54 +8 65
8 Coventry 42 17 12 13 66 52 +14 63
9 Middlesbrough 43 18 9 16 61 56 +5 63
10 Preston NE 43 18 9 16 56 60 -4 63
11 Cardiff City 43 18 5 20 48 60 -12 59
12 Bristol City 43 16 10 17 50 46 +4 58
13 Sunderland 43 16 8 19 52 50 +2 56
14 Swansea 43 14 11 18 53 62 -9 53
15 Watford 43 12 16 15 59 58 +1 52
16 Millwall 43 13 11 19 42 55 -13 50
17 Blackburn 43 13 10 20 57 71 -14 49
18 Plymouth 43 12 12 19 58 66 -8 48
19 QPR 43 12 11 20 40 57 -17 47
20 Stoke City 43 12 11 20 41 60 -19 47
21 Birmingham 43 12 9 22 48 64 -16 45
22 Huddersfield 43 9 17 17 47 70 -23 44
23 Sheff Wed 43 12 8 23 36 67 -31 44
24 Rotherham 43 4 11 28 32 85 -53 23
Athugasemdir
banner
banner
banner