Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. október 2018 09:09
Elvar Geir Magnússon
Líkleg byrjunarlið Man Utd og Juventus
Ronaldo á Old Trafford í gær.
Ronaldo á Old Trafford í gær.
Mynd: Getty Images
Manchester United tekur á móti Juventus í H-riðli Meistaradeildarinnar í kvöld, 18:45. Ítalíumeistararnir hafa unnið báða leiki sína í riðlinum en United er með fjögur stig í öðru sæti.

Cristiano Ronaldo snýr aftur á Old Trafford í annað sinn síðan hann yfirgaf United fyrir Real Madrid 2009.

Jose Mourinho mun líklega halda sig við stærstan hluta liðsins sem gerði 2-2 jafntefli gegn Chelsea um liðna helgi en Mirror spáir því að Ander Herrera komi inn í stað Marcus Rashford.

Líkleg byrjunarlið:

Manchester United: De Gea, Young, Smalling, Lindelof, Shaw, Matic, Pogba, Herrera, Mata, Martial, Lukaku

Juventus: Szczesny, Cancelo, Bonucci, Chiellini, Sandro, Bentancur, Pjanic, Matuidi, Dybala, Ronaldo, Costa

Dómari: Milorad Mazic (Serbía)

Innbyrðis viðureignir: Manchester United 5 sigrar, Juventus 5 sigrar, Jafntefli 2
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner