banner
   þri 23. október 2018 14:18
Elvar Geir Magnússon
Perisic tæpur fyrir leikinn gegn Barcelona
Perisic ekki með gegn Börsungum?
Perisic ekki með gegn Börsungum?
Mynd: Getty Images
Króatarnir Ivan Perisic og Marcelo Brozovic eru báðir tæpir fyrir stórleik Inter gegn Barcelona á morgun. Þeir ferðuðust þó báðir með til Katalóníu.

Þeir æfðu ekki með Inter í dag heldur voru í séræfingum með sjúkraþjálfurum. Brozovic kláraði þó æfinguna með hópnum.

Það kemur ekki í ljós fyrr en á morgun hvort þeir muni spila á morgun.

Radja Nainggolan spilar ekki næstu leiki eftir að hafa meiðst á ökkla í sigrinum gegn AC Milan á sunnudaginn. Hann vonast til að leika seinni leikinn gegn Börsungum þann 6. nóvember.

Barcelona og Inter leiða B-riðil Meistaradeildarinnar, bæði lið eru með sex stig en Tottenham og PSV eru stigalaus.

Sjá einnig:
Mynd: Messi í fatla
Athugasemdir
banner
banner