Rúmenski varnarmaðurinn Vlad Chiriches skoraði stórkostlegt mark í 3-3 jafntefli liðsins gegn Torino í Seríu A í kvöld.
Sassuolo var tveimur mörkum undir þegar sex mínútur voru eftir af leiknum.
Chiriches ákvað að taka málin í sínar hendur og lét vaða fyrir utan teig en boltinn hafnaði efst í fjærhorninu.
Hægt er að sjá þennan þrumufleyg hér fyrir neðan en þetta mark hjálpaði Sassuolo að ná í stigið því Francesco Caputo skoraði innan við mínútu síðar.
Sjáðu markið hjá Chiriches
Athugasemdir