Fotbolti.net
23.10.21 - 15:37
Aksentije Milisic

Byrjunarlið Brighton og Man City: De Bruyne og Mahrez bekkjaðir

Situr á bekknum.

Situr á bekknum.

Canon

Mynd: Getty Images

Síðasti leikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni er viðureign Brighton og Manchester City en leikurinn fer fram á The American Express Community vellinum í Brighton.
Liðin eru í 3 og 4. sæti deildarinnar og einungis munar tveimur stigum á milli. Brighton gerði svekkjandi 0-0 jafntefli gegn Norwich um síðustu helgi en á sama tíma vann Manchester City þægilega 2-0 sigur á Burnley á heimavelli.

Pep Guardiola, stjóri City, gerir sex breytingar á byrjunarliðinu frá þeim leik. Ederson, Kyle Walker, Ruben Dias, Gundogan, Gabriel Jesus og Jack Grealish koma allir inn í liðið.

Graham Potter, stjóri Brighton, gerir eina breytingar frá jafnteflisleiknum gegn Norwich. Duffy fer á bekkinn fyrir Solly March.

Flautað verður til leiks klukkan 16:30 og er dómari leiksins góðvinurinn Kevin Friend.

Brighton: Sanchez, Cucurella, Dunk, Maupay, Trossard, Gross, Lallana, Moder, March, Burn, Veltman.
(Varamenn: Steele, Lamptey, Webster, Connolly, Bissouma, Mac Allister, Mwepu, Duffy, Richards)

Manchester City: Ederson, Walker, Dias, Laporte, Cancelo, Rodrigo, Gundogan (C), Bernardo, Jesus, Foden, Grealish
(Varamenn: Steffen, Stones, Ake, Zinchenko, De Bruyne, Fernandinho, Mahrez, Edozie, Palmer)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.