Fotbolti.net
23.10.22 - 15:52
Aksentije Milisic

Besta deildin: Jannik og Gummi Magg afgreiddu FH

Tvö frá Jannik.

Tvö frá Jannik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram 3 - 0 FH
1-0 Jannik Holmsgaard ('11 )
2-0 Jannik Holmsgaard ('45 )
3-0 Guðmundur Magnússon ('52 )

Lestu um leikinn

Það var einn leikur á dagskrá í neðri helming Bestu deildar karla í dag en þar áttust við Fram og FH á Framvellinum.

Frammararnir voru á skotskónum í dag en ekki FH þrátt fyrir að gestirnir hafi átt nóg af færum til að skora mark í dag.

Leiknum lauk með 3-0 sigri Fram þar sem Jannik Holmsgaard gerði tvennu og Guðmundur Magnússon skoraði eitt.

Guðmundur var þarna að jafna Nökkva Þey Þórisson í baráttunni um gullskóinn en þeir eru báðir komnir með sautján mörk á þessari leiktíð. Nokkuð er síðan Nökkvi fór út í atvinnumennskuna.

Með sigrinum fer Fram yfir ÍBV og í áttunda sæti deildarinnar en FH mun enda í þriðja neðsta sætinu á þessari leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.