Fotbolti.net
23.10.22 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Potter og Ten Hag vonsviknir með níðsöngva

Potter og Ten Hag vonsviknir með níðsöngva
Canon

Mynd: EPA

Graham Potter og Erik ten Hag töluðu báðir um níðsöngva sem heyrðust frá áhorfendapöllunum á meðan Chelsea og Manchester United gerðu 1-1 jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Knattspyrnustjórarnir fordæma söngvana, sem er beint gegn samkynhneigðum, og hafa bæði knattspyrnufélögin gefið út yfirlýsingar vegna málsins. 

Notkunin á orðinu 'rent boy' eða 'leigustrákur' hefur farið fyrir brjóstið á fólki enda er það skilgreint sem hatursfull orðræða í breskum lögum.

Níðsöngvarnir heyrðust af pöllunum á Stamford Bridge í gær útaf því að bæði Chelsea og Man Utd hafa verið að vekja athygli á baráttu Stonewall - Rainbow Laces gegn fordómum í garð samkynhneigðra.

„Það er augljóst að við eigum enn langt í land þegar kemur að ýmsum málefnum," sagði Potter, knattspyrnustjóri Chelsea, að leikslokum.

Ten Hag, stjóri Man Utd, tók undir með kollega sínum. „Þetta á hvorki heima á áhorfendapöllunum né neinsstaðar annarsstaðar. Fólk verður að hætta þessu."

Chelsea er í fjórða sæti eftir jafnteflið með 21 stig úr 11 leikjum á meðan Man Utd er í fimmta sæti með 20 stig.

Potter og Ten Hag vonsviknir með níðsöngva
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.