Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   fös 23. desember 2022 16:30
Brynjar Ingi Erluson
Man City og Liverpool senda frá sér sameiginlega yfirlýsingu
Úr leiknum í gær
Úr leiknum í gær
Mynd: EPA
Ensku úrvalsdeildarfélögin Liverpool og Manchester City hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu vegna þeirra atburða sem áttu sér staða á leik liðanna í enska deildabikarnum í gær.

Mikill rígur hefur verið á milli stuðningsmanna þessara liða í undanförnum leikjum þar sem óviðeigandi hegðun frá báðum stuðningsmannahópum hafa átt sér stað.

Það virðist ríkja spenna þarna á milli en félögin sendu bæði frá sér yfirlýsingu fyrir leikinn þar sem það var kallað eftir frið.

Fjölmörg atvik komu upp á Etihad-leikvanginum í gær en þar á meðal meiddist 15 ára gömul stelpa eftir að stuðningsmaður kastaði plastglasi sem innihélt talsvert af mynt.

Félögin hafa nú sent frá sér aðra yfirlýsingu þar sem kemur fram að öll atvikin sem áttu sér stað séu nú til rannsóknar og að niðurstöður hennar verða svo tilkynntar til lögreglu. Félögin ætla svo að refsa þeim sem áttu í hlut.

„Það eru mikil vonbrigði að nokkur atvik hafi átt sér stað á leiknum í gær og það er með öllu óásættanlegt. Þessi atvik verða rannsökuð, tilkynnt til lögreglu og þá verður þessum einstaklingum sem áttu í hlut refsað af viðkomandi félagi. Manchester City og Liverpool eru skuldbundin því að vinna saman og eyða þessum vandamálum úr leikjum liðanna. Þau eiga sér engan stað í fótbolta,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu félaganna.


Athugasemdir
banner