Riyad Mahrez átti frábæran leik er Manchester City kastaði Liverpool úr leik í enska deildabikarnum í gær en hann var með bestu mönnum vallarins á Etihad-leikvanginum.
Mahrez skoraði annað mark City snemma í síðari hálfleiknum. Hann tók við frábærri sendingu Rodri, lagði boltann til hliðar og smurði hann í vinstra hornið.
Man City er komið í 8-liða úrslit og mætir Southampton.
„Það er alltaf gott að skora og hjálpa liðinu að vinna. Í heildina vorum við ótrúlega góðir og áttum sigurinn skilið,“ sagði Mahrez.
„Allir komu til baka með mjög gott hugarfar og tilbúnir að byrja aftur. Þetta var erfiður andstæðingur til að byrja á.“
„Við erum búnir að vinna Chelsea og Liverpool þannig við verðum að sjá til. Við tökum einn leik í einu og einbeitum okkur núna að næsta leik í deildinni, sem er mikilvægasti leikurinn í augnablikinu,“ sagði auðmjúkur Mahrez í lok viðtals.
Athugasemdir



