fim 24. janúar 2019 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Framherji Sevilla tileinkaði Sala markið
Wissam Ben Yedder í bolnum
Wissam Ben Yedder í bolnum
Mynd: Getty Images
Wissam Ben Yedder, framherji Sevilla, skoraði annað mark liðsins í 2-0 sigrinum á Barcelona í spænska konungsbikarnum í gær en hann vildi koma fallegum skilaboðum áleiðis.

Ben Yedder er 28 ára gamall og spilaði með Toulouse í frönsku deildinni í sex ár áður en hann samdi við Sevilla. Þar lék hann gegn argentínska framherjanum Emiliano Sala.

Sala hefur mikið verið í fréttum síðustu daga en hann var um borð í flugvél sem týndist á leið frá Cardiff til Nantes. Sala var nýlega keyptur til Cardiff fyrir 15 milljónir punda en hann ætlaði til Frakklands að kveðja liðsfélaga sína er flugvélin hvarf af ratskjám.

Víðamikil leit hefur farið fram en John Fitzgerald, sem er yfir rannsókninni, telur það afar ólíklegt að Sala og flugmaðurinn finnist á lífi.

Ben Yedder vildi koma fallegum skilaboðum áleiðis eins og áður segir.

„Fyrir bróður minn. Styrkur til þín, E. Sala," stóð á bolnum sem var undir treyjunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner