Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   fös 24. janúar 2020 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn um helgina - Barca og Real eiga útileiki
Spænska helgin hefst á viðureign Osasuna og Levante sem fer fram í kvöld. Aðeins eitt stig skilur liðin að um miðja deild.

Í hádeginu á morgun, laugardag, á botnlið Espanyol heimaleik við Athletic Bilbao sem verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.

Í kjölfarið fylgir svo stærsti leikur helgarinnar, þar sem Valencia tekur á móti Barcelona sem átti í gríðarlega miklum erfiðleikum á útivelli gegn Ibiza í spænska bikarnum í miðri viku. Valencia getur blandað sér í baráttuna um Meistaradeildarsæti með sigri.

Alaves mætir svo Villarreal í áhugaverðum leik áður en Sevilla og Granada eigast við í lokaleik dagsins. Sevilla er jafnt Atletico Madrid á stigum í þriðja sæti deildarinnar, átta stigum frá toppliðunum.

Atletico mætir Leganes í hádegisleiknum á sunnudaginn og um kvöldið verða tveir aðrir leikir sýndir í beinni útsendingu.

Real Sociedad mætir nýliðum Real Mallorca í beinni áður en Real Madrid heimsækir Real Valladolid.

Föstudagur:
20:00 Osasuna - Levante

Laugardagur:
12:00 Espanyol - Athletic Bilbao (Stöð 2 Sport 2)
15:00 Valencia - Barcelona (Stöð 2 Sport 3)
17:30 Alaves - Villarreal
20:00 Sevilla - Granada (Stöð 2 Sport)

Sunnudagur:
11:00 Atletico Madrid - Leganes (Stöð 2 Sport 2)
13:00 Celta Vigo - Eibar
15:00 Getafe - Real Betis
17:30 Real Sociedad - Real Mallorca (Stöð 2 Sport 3)
20:00 Real Valladolid - Real Madrid (Stöð 2 Sport 2)
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 38 31 1 6 95 36 +59 94
2 Real Madrid 38 27 5 6 77 35 +42 86
3 Villarreal 38 22 6 10 72 46 +26 72
4 Atletico Madrid 38 21 6 11 62 44 +18 69
5 Betis 38 15 15 8 59 48 +11 60
6 Celta 38 14 12 12 53 48 +5 54
7 Getafe 38 15 6 17 32 38 -6 51
8 Vallecano 38 12 14 12 41 44 -3 50
9 Valencia 38 13 10 15 46 55 -9 49
10 Real Sociedad 38 11 13 14 59 61 -2 46
11 Espanyol 38 12 10 16 43 55 -12 46
12 Athletic 38 13 6 19 43 58 -15 45
13 Elche 38 10 13 15 49 57 -8 43
14 Alaves 38 11 10 17 44 56 -12 43
15 Sevilla 38 12 7 19 46 60 -14 43
16 Osasuna 38 11 9 18 44 50 -6 42
17 Mallorca 38 11 9 18 47 57 -10 42
18 Levante 38 11 9 18 47 61 -14 42
19 Girona 38 9 14 15 39 55 -16 41
20 Oviedo 38 6 11 21 26 60 -34 29
Slapp
banner
banner
banner