Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 24. mars 2019 17:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Agla María framlengir við Breiðablik
Agla María Albertsdóttir.
Agla María Albertsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Landsliðskonan Agla María Albertsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik, samningurinn gildir til þriggja ára.

Þessi 19 ára gamla landsliðskona kom til Blika frá Stjörnunni á síðasta ári, hún skoraði 9 mörk í 22 leikjum í deild og bikar síðasta sumar.

Agla lék með yngri flokkum Breiðabliks en fór árið 2015 til Vals. Árið 2016 fór hún til Stjörnunnar og eins og fyrr segir snéri hún aftur til Breiðabliks á síðasta ári.

Hún á að baki 23 landsleiki og hefur skorað í þeim tvö mörk, Agla lék alls 27 leiki fyrir yngri landsliðin og skoraði í þeim tíu mörk.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner