sun 24. mars 2019 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Enrique: Ramos einstakur leikmaður - Sjáðu vítasyrnuna
Mynd: Getty Images
Luis Enrique, landsliðsþjálfari Spánar, var gríðarlega ánægður með Sergio Ramos eftir að Ramos skoraði sigurmark Spánar gegn Noregi í gær.

Sergio Ramos skoraði úr vítaspyrnu með svokallaðri Panenka vítaspyrnu.

„Við gerðum vel, við vissum að þetta yrði erfiður leikur," sagði Enrique.

„Ramos gerði vel fyrir okkur með vítaspyrnu sinni. Hann er einstakur leikmaður í sögu fótboltans."

„Mér fannst við eiga að vinna 5-1 eða 6-1 en svona er fótboltinn."


Rune Jarstein, markvörður Noregs tjáði sig einnig um vítaspyrnu Ramos.

„Ég ætlaði að standa og bíða eins lengi og ég gæti því ég vissi að hann gæti sett hann beint á markið. Ég var búinn að ræða við vini mína um þetta en á síðustu stundu ákvað ég að skutla mér til hægri. Það voru mistök," sagði Jarstein.

Vítaspyrnuna má sjá með því að smella hér.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner