Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 24. mars 2019 16:01
Arnar Daði Arnarsson
Jóhann Berg meiddur - Ekki með á morgun
Icelandair
Jóhann Berg er meiddur.
Jóhann Berg er meiddur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhann Berg Guðmundsson leikmaður Burnley og íslenska landsliðið er meiddur og verður ekki með Íslandi gegn Frakklandi í öðrum leik landsliðsins í undankeppni EM.

Þetta staðfesti Erik Hamrén landsliðsþjálfari á fréttamannafundi sem er nú í gangi í París.

„Jói er meiddur á kálfa og verður ekki með á morgun. Hann fer aftur til Burnley á morgun," sagði Hamrén.

Þetta er mikið áfall fyrir íslenska landsliðið en Jóhann Berg hefur verið að glíma við meiðsli á kálfa undanfarnar vikur en hann lék þó gegn Andorra á föstudaginn síðastliðinn.

Jóhann Berg fór af velli í 2-0 sigri Íslands á Andorra á 83. mínútu fyrir Arnór Ingva Traustason.
Athugasemdir
banner
banner
banner