Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 24. mars 2019 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kean: Ég nýti mér leyndarmál Ronaldo
Mynd: Getty Images
Moise Kean, 19 ára leikmaður Juventus, og Nicolo Barella, 21 árs leikmaður Cagliari, skoruðu mörk Ítalíu í 2-0 sigri liðsins á Finnlandi í gær. Ítalir eru mjög spenntir fyrri markaskorurum gærdagsins.

Kean varð með markinu fyrsti leikmaður ítalska landsliðsins sem er fæddur á 21. öldinni til þess að skora mark fyrir landsliðið.

Kean sagði í viðtali eftir leik að hann nyti góðs af því að æfa með Cristiano Ronaldo og að geta séð hvað hann gerir á æfingum.

„Ég læri af Ronaldo á æfingum, ég stel leyndarmálum hans og nýti mér þau í leikjum," sagði Kean.

Roberto Mancini, landsliðsþjálfari Ítalíu var ánægður með sinn mann.

„Hann hefur mikla hæfileika en framtíðin er í hans höndum. Hann getur ennþá bætt sig gífurlega mikið," sagði Mancini.
Athugasemdir
banner
banner
banner