Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 24. mars 2019 07:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kompany besti erlendi varnarmaður í sögu Úrvalsdeildarinnar
Mynd: Getty Images
Könnun fór fram á BBC á dögunum þar sem bestu leikmenn Úrvalsdeildarinnar sem ekki eru fæddir á Bretlandseyjum voru valdir eftir því hvar á vellinum þeir spiluðu.

Valið fór þannig fram að nefnd valdi þrjá markmenn, þrjá varnarmenn, þrjá miðjumenn og fjóra sóknarmenn. Mengi leikmanna var það að þeir urðu allir að hafa komist í lið ársins í Úrvalsdeildinni. Svo var kosið um hver væri bestur í hverri stöðu og einnig hver fékk flestu atkvæðin sem besti erlendi leikmaður deildarinnar frá upphafi. Alls voru ríflega 250 þúsund atkvæði greidd í kosningunni.

Þeir þrír varnarmenn sem voru valdir af nefndinni voru þeir Nemanja Vidic(Man Utd), Vincent Kompany(Manchester City) og Jaap Stam(Man Utd).

Belginn Vincent Kompany fékk flest atkvæði þeirra þriggja. Þeir leikmenn sem voru næst því að vera á meðal efstu þriggja þegar nefndin valdi voru þeir Sami Hyypia(Liverpool) og Ricardo Carvalho(Chelsea).

Chris Sutton, sem varð Englandsmeistari með Blackburn tjáði sig um Kompany á BBC í kjölfar kosningarinnar og hafði þetta að segja: „Frábær leiðtogi. Ég spilaði gegn honum þegar hann var hjá Anderlecht sautján ára gamall. Hann dekkaði mig út úr leiknum. Hann var þroskaður miðað við aldur og las leikinn frábærlega."

Kompany fékk alls 2% heildaratkvæða yfir hver væri besti útlendingurinn í sögu deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner