Það var leikið í C-deild Lengjubikarsins í dag, Hamar mætti Elliða og KÁ og Íbjörninn áttust við.
Hamar sigraði Elliða 2-1, Pétur Geir Ómarsson kom Hamri yfir á 28. mínútu og Samuel Andrew Malson skoraði annað markið í upphafi seinni hálfleiks.
Pétur Óskarsson minnkaði muninn fyrir Elliða en nær komust þeir ekki og niðurstaðan 2-1 sigur Hamars.
KÁ var ekki í neinum vandræðum með Ísbjörninn en þeir skoruðu sex mörk gegn engu marki Ísbjarnarins, öll mörkin voru skoruð í seinni hálfleik.
Hamar 2-1 Elliði
1-0 Pétur Geir Ómarsson ('28)
2-0 Samuel Andrew Malson ('46)
2-1 Pétur Óskarsson ('61)
KÁ 6-0 Ísbjörninn
1-0 Jóhann Andri Kristjánsson ('46)
2-0 Kristján Ómar Björnsson ('47)
3-0 Karl Viðar Magnússon ('64)
4-0 Sindri Hrafn Jónsson ('67)
5-0 Jóhann Andri Kristjánsson ('69)
6-0 Sigurgeir Jónasson ('75)
Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir