Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   sun 24. mars 2019 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ramsey meiddur - Giggs með varaáætlun
Mynd: Getty Images
Aaron Ramsey, leikmaður Arsenal og landsliðs Wales, er meiddur og mun ekki taka þátt í landsleik Wales og Slóvakíu sem fram fer seinna í dag.

Ramsey hefur verið meiddur á læri og var ekki með í vináttulandsleik Wales og Trinidad og Tobago í miðri viku.

Ryan Giggs, goðsögn hjá Manchester United og landsliðsþjálfari Wales, segir vont að vera án Ramsey en hann sé búinn að undirbúa sitt lið vel fyrir leikinn á eftir.

„Aaron er farinn aftur til Arsenal, hann náði sér ekki af meiðslunum í tæka tíð fyrir leikinn," sagði Giggs.

„Þetta er auðvitað ákveðið högg fyrir okkur, sérstaklega þar sem Ramsey hefur verið að spila vel og hefur mikil gæði. Hann reyndi að vera með á æfingu í gær en hann var ekki orðinn klár".

„Þetta gefur öðrum leikmanni tækifæri. Við vorum undirbúnir undir þennan möguleika og við erum með varaáætlun fyrir leikinn sem við höfum unnið með í vikunni."


David Brooks, miðjumaður Bournemouth, hefur verið meiddur en Giggs vonast til að hann nái leiknum í dag. Ethan Ampadu, Sam Vokes og Tom Lawrence eru hins vegar allir frá vegna meiðsla.
Athugasemdir
banner