Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 24. mars 2019 20:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Redknapp: Kane mun vera hjá Tottenham í mörg ár
Harry Redknapp stýrði Tottenham á árunum 2008-2012.
Harry Redknapp stýrði Tottenham á árunum 2008-2012.
Mynd: Getty Images
Harry Redknapp fyrrum stjóri Tottenham er ánægður með gengi liðsins um þessar mundir.

„Þeir munu vonandi ná 3. sætinu á þessu tímabili," sagði Redknapp sem er ánægður með Pochettino núverandi stjóra Tottenham.

„Pochettino mun vera áfram hjá Spurs, hann er hjá stóru og góðu félagi. Nýr völlur, frábærir leikmenn og frábært æfingasvæði, hvað er hægt að biðja um meira?"

Redknapp var spurður út í framtíð Harry Kane hjá Tottenham sem er öðru hverju orðaður við brottför frá félaginu.

„Ég held að það sé alveg klárt mál að Kane verður áfram og hann mun vera hjá Tottenham í mörg ár í viðbót það er engin spurning held ég."

Athugasemdir
banner
banner
banner