Fotbolti.net
24.04.19 - 18:10
Ívan Guðjón Baldursson

Byrjunarlið kvöldsins: Darmian og Young byrja

Byrjunarlið kvöldsins: Darmian og Young byrja
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United og Manchester City eigast við í stórleik kvöldsins á Old Trafford. Pep Guardiola getur í kvöld orðið fyrsti stjórinn til að vinna þrjá útileiki í röð á Old Trafford.
Byrjunarlið Man Utd kemur mjög á óvart þar sem Anthony Martial, Romelu Lukaku og Nemanja Matic eru á bekknum. Ashley Young, Matteo Darmian og Andreas Pereira eru aftur á móti í byrjunarliðinu.

Það er ekkert sem kemur á óvart í liðsvali Pep Guardiola, þar sem David og Bernardo Silva byrja báðir ásamt Raheem Sterling og Sergio Agüero. Kevin De Bruyne er ekki í hóp vegna meiðsla.

City tekur toppsæti úrvalsdeildarinnar af Liverpool með sigri á meðan Man Utd getur komist yfir Arsenal og jafnað Chelsea á stigum í fjórða sæti.

Arsenal á einnig leik í kvöld. gegn Úlfunum sem eru í baráttu um sjöunda sætið.

Shkodran Mustafi var settur á bekkinn eftir skelfilegan leik í 2-3 tapi gegn Crystal Palace en Pierre-Emerick Aubameyang er ekki í hópi Arsenal vegna meiðsla. Alexandre Lacazette byrjar fremstur með Henrikh Mkhitaryan, Mesut Özil og Alex Iwobi fyrir aftan sig.

Man Utd: De Gea, Darmian, Lindelöf, Smalling, Shaw, Young, Fred, Pereira, Pogba, Lingard, Rashford
Varamenn: Romero, Dalot, Matic, Mata, Sanchez, Martial, Lukaku

Man City: Ederson, Walker, Kompany, Laporte, Zinchenko, Fernandinho, Gundogan, B.Silva, D.Silva, Sterling, Aguero
Varamenn: Muric, Danilo, Otamendi, Foden, Sane, Mahrez, Jesus



Wolves: Rui Patricio, Coady, Jonny, Doherty, Bennett, Boly, Moutinho, Dendoncker, Neves, Jota, Jimenez
Varamenn: Ruddy, Saiss, Vinagre, Gibbs-White, Costa, Cavaleiro, A.Traore

Arsenal: Leno, Maitland-Niles, Papastathopoulos, Koscielny, Monreal, Torreira, Xhaka, Mkhitaryan, Ozil, Iwobi, Lacazette
Varamenn: Cech, Mustafi, Kolasinac, Elneny, Guendouzi, Willock, Nketiah

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.