Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 24. apríl 2019 20:32
Ívan Guðjón Baldursson
Jeffrey Schlupp segist vera frá út tímabilið
Mynd: Getty Images
Crystal Palace er búið að missa Jeffrey Schlupp í meiðsli út tímabilið en þessi kröftugi bakvörður hefur komið við sögu í nánast öllum leikjum liðsins hingað til.

Schlupp er 26 ára gamall og var hjá Leicester City í sjö ár áður en hann skipti yfir til Palace fyrir rúmlega tveimur árum. Hann leikur ýmist sem bakvörður eða kantmaður og er búinn að gera 4 mörk í 30 deildarleikjum á tímabilinu. Auk þess gerði hann 1 mark í 7 leikjum í bikarkeppnum.

Schlupp er landsliðsmaður Gana og á 15 leiki að baki fyrir þjóð sína.

Það vekur þó athygli að Ben Dinnery, helsti meiðslasérfræðingur úrvalsdeildarinnar, segir að Schlupp verði aðeins frá í þrjár vikur og geti því mögulega náð síðustu leikjum Palace á tímabilinu.




Athugasemdir
banner
banner
banner