Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 24. apríl 2019 10:37
Elvar Geir Magnússon
Salah hitti Game of Thrones stjörnu
Salah og Emilia Clarke.
Salah og Emilia Clarke.
Mynd: Mirror
Mohamed Salah, stjarna Liverpool, er formlega kominn í hóp með ríka og fræga fólkinu en hann var í New York í gærkvöldi og fagnaði því að vera á lista Time tímaritsins yfir 100 áhrifamestu einstaklinga í heiminum.

Salah spjallaði meðal annars við Rami Malek sem fékk Óskarsverðlaun á þessu ári fyrir túlkun sína á Freddie Mercury í kvikmyndinni Bohemian Rhapsody.

Salah og Emilia Clarke voru mynduð saman en Emilia leikur drekadrottninguna Daenerys Targaryen í Game of Thrones þáttunum vinsælu.

Salah hélt beint aftur til Liverpool eftir gleðskapinn og verður að sjálfsögðu með sínum mönnum gegn Huddersfield á föstudagskvöld. Liverpool er í baráttu um að vinna ensku úrvalsdeildina og Meistaradeildina.
Athugasemdir
banner
banner
banner