Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 24. apríl 2020 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sol Campbell sagður ósáttur og tilbúinn að hætta
Sol Campbell.
Sol Campbell.
Mynd: Getty Images
Enskir fjölmiðlar segja frá því að Sol Campbell sé við það að hætta sem þjálfari Southend í ensku C-deildinni.

Southend er í fjárhagsvandræðum og sendi starfsfólk sitt og nokkra af leikmönnum sínum í leyfi vegna kórónuveirufaraldursins. Southend ætlar sér að nýta sér ríkisaðstoð í Bretlandi þannig að ríkið borgi 80 prósent af launum og félagið 20 prósent.

Southend er í næst neðsta sæti C-deildarinnar, 16 stigum frá öruggu sæti. Félagið hefur tvisvar verið ákært af enska knattspyrnusambandinu á þessu tímabili fyrir að borga ekki leikmönnum á réttum tíma.

Campbell hætti hjá Macclesfield fyrr á þessu tímabili vegna fjárhagsvandræða. Hermann Hreiðarsson vann með honum hjá Macclesfield og núna hjá Southend. Gera má ráð fyrir því að ef Campbell hætti þá muni Hermann gera það líka.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner