Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 24. apríl 2020 20:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Zlatan spilaði með Hammarby og skoraði
Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic.
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Zlatan Ibrahimovic spilaði æfingaleik fyrir sænska félagið Hammarby í dag. Hinn 38 ára gamli Zlatan gerði sér lítið fyrir og skoraði í leiknum.

Zlatan fór heim til Svíþjóð þar sem ástandið á Ítalíu, þar sem hann leikur með AC Milan, hefur verið mjög slæmt í kórónuveirufaraldrinum.

Zlatan hefur verið að æfa með Hammarby, félagi sem hann á 25 prósent hlut í.

Svíar hafa ekki gengið rosalega langt í takmörkunum sínum gegn kórónuveirunni og eru æfingaleikir þar leyfilegir að því gefnu að ekki komi fleiri en 50 manns saman í tengslum við leikina. Leikmenn Hammarby tóku í dag þátt í æfingaleik, ásamt leikmönnum úr liðum Bajans og IK Frej, í beinni sjónvarpsútsendingu. Leikmönnum liðanna var skipt í lið og leikur spilaður.

Aron Jóhannsson er á mála hjá Hammarby, en hann var ekki í liði með Zlatan.

Hér að neðan má sjá markið sem Zlatan skoraði.


Athugasemdir
banner
banner
banner