Mauricio Pochettino er bjartsýnn á að Harry Kane verði klár í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
Tottenham mætir Liverpool í Madríd þann 1. júní.
Kane hefur ekki spilað síðan hann meiddist á ökkla í fyrri leiknum gegn Manchester City í Meistaradeildinni.
Tottenham mætir Liverpool í Madríd þann 1. júní.
Kane hefur ekki spilað síðan hann meiddist á ökkla í fyrri leiknum gegn Manchester City í Meistaradeildinni.
„Kane er að æfa og er á góðri leið. Vonandi getur hann verið til staðar og aðstoðað okkur, hvort sem hann byrji, verði á bekknum eða veiti andlegan stuðning í klefanum," segir Pochettino.
„Við erum bjartsýnir á að hann muni geta hjálpað okkur á vellinum."
Kane hefur skorað 24 mörk í 39 leikjum í öllum keppnum.
Athugasemdir