Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 24. maí 2019 18:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Goal: Man Utd búið að bjóða í Dembele
Mynd: Getty Images
Manchester United er sagt hafa boðið í Moussa Dembele, framherja Lyon. Þetta kemur fram á vefsíðunni Goal.com.

United á að hafa boðið 40 milljónir evra í framherjann eða um 35 milljónir punda.

Dembele átti gott tímabil hjá Lyon og hefur verið orðaður við PSG undanfarið. Dembele lék áður fyrir Fulham og Celtic áður en hann gekk í raðir Lyon.

Lyon endar í þriðja sæti deildarinnar í Frakklandi og skoraði Dembele fimmtán mörk fyrir félagið í Ligue 1 í vetur. Alls hefur Dembele skorað 23 mörk fyrir Lyon frá komu sinni til Lyon.

Sky Sports hefur í dag orðað United við Idrissa Gueye miðjumann Everton og Sean Longstaff miðjumann Newcastle.
Athugasemdir
banner
banner
banner