FH vann í kvöld 2-0 sigur á Fjölni í Inkasso deild kvenna í kvöld. Margrét Sif kom FH yfir á 26. mínútu. Fjölnir ógnaði FH í seinni hálfleik áður en Úlfa Dís gerði út um leikinn fyrir FH með marki á 89. mínútu.
Lestu meira um leikinn FH 2-0 Fjölnir hér.
Lestu meira um leikinn FH 2-0 Fjölnir hér.
Guðni Eiríksson, þjálfari FH, var í viðtali eftir sigur FH í kvöld.
„Við fengum klárlega það sem við stefndum að fyrir leik. Stefnan var alltaf að taka þrjú stig," sagði Guðni eftir leik.
„Fjölnir ógnaði okkur í seinni hálfleik og þær ætluðu svo sannarlega að fá eitthvað út úr leiknum. Við svo refsum þeim í restina."
„Boltinn gekk vel á milli leikmanna og við fundum glufurnar."
„Ég fékk þá leikmenn sem ég vildi fyrir tímabilið og ég er að búa til kjarna sem stefnir á eitthvað lengra. Ef við vinnum leiki þá hljótum við að fara upp og ekkert launungarmál að við stefnum á efstu deild."
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst í fréttinni.
Athugasemdir