Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   fös 24. maí 2019 22:15
Mist Rúnarsdóttir
Linda Líf: Við skorum sem lið
Linda Líf skoraði og lagði upp í kvöld
Linda Líf skoraði og lagði upp í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst leikurinn mjög góður en erfiður,“ sagði Linda Líf Boama sem átti frábæran leik þegar Þróttur sigraði Tindastól 4-2 í Inkasso-deild kvenna í kvöld. Eftir leiki kvöldsins eru Þróttarar áfram á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 4 -  2 Tindastóll

Þegar Linda Líf var spurð að því hvort að öflug byrjun Þróttar kæmi henni á óvart var svarið skýrt nei.

„Nei, við erum mjög skipulagðar og erum með frábært teymi á bakvið okkur. Þetta er bara eftir plani.“

Sjálf hefur Linda Líf farið vel af stað í markaskorun og er komin með 5 mörk í þremur fyrstu leikjum. Aðspurð vildi hún þó lítið gefa upp um markmið sín í markaskorun.

„Nei, ég get ekki sagt það. Ég tek einn leik í einu og við vinnum saman sem lið. Skorum sem lið. Það er ekkert að marka hver skorar.“

Það hefur verið gaman að fylgjast með samvinnu framherjanna Lindu Lífar og Lauren Wade en þær eru báðar nýliðar hjá Þrótti. Linda Líf segir njóta þess að spila með Lauren og læra af henni.

„Ég er mjög heppin að hafa hana með mér. Hún er mjög reynslumikil og hefur hjálpað mér mjög mikið. Það er mjög þægilegt að spila með henni.“

Hægt er að horfa á allt viðtalið við Lindu Líf í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner