Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 24. maí 2019 13:02
Elvar Geir Magnússon
Real Madrid sakar Pochettino um að ljúga
Mauricio Pochettino.
Mauricio Pochettino.
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, sagði við fjölmiðla að Real Madrid hafi hafnað beiðni félagsins um að fá að dvelja í húsnæði félagsins fyrir úrslitaleikinn gegn Liverpool í Meistaradeildinni.

Leikurinn verður á Wanda Metropolitano leikvangnum í Madrid, heimavelli Atletico, þann 1. júní.

Bæði Tottenham og Liverpool munu æfa á æfingasvæði Real Madrid.

„Við æfum á þeirra æfingasvæði og gistum á hóteli í nágrenninu. Ég spurði Florentino (Perez) hvort við gætum fengið að gista í þeirra húsnæði en hann sagði að ég mætti bara sofa þar þegar ég væri orðinn þjálfari Real Madrid," segir Pochettino.

Þessi ummæli féllu í grýttan jarðveg hjá Real Madrid. Félagið sendi frá sér yfirlýsingu þar sem sagt er að öllum beiðnum varðandi undirbúning að leiknum hafi verið svarað játandi.

„Real Madrid er undrandi á orðum Mauricio Pochettino. Það er ekki satt að beðið hafi verið um að gista á okkar svæði. Félagið hefur samþykkt allar kröfur og beiðnir varðandi leikinn sem hafa komið frá UEFA, spænska sambandinu, Atletico Madrid, Liverpool og Tottenham," segir yfirlýsing Real Madrid.

Pochettino hefur verið orðaður við Real Madrid en hann sagði á fréttamannafundi að það væri ekki sérstakt markmið sitt að taka við stjórnartaumunum þar einn daginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner