Það fóru þrír leikir fram í 2. deild kvenna í gær þar sem frábær byrjun Einherja hélt áfram með þægilegum sigri á ÍR.
Það var suðræn stemning á Vopnafirði þegar Florencia Moreira, Ainhoa Fernández og Mar García skoruðu mörkin í 4-0 sigri. Einherji er með fullt hús stig eftir þrjár umferðir og markatöluna 21-0.
Vestri og Fjölnir deila öðru sætinu eftir að hafa gert jafntefli innbyrðis. Þar komust nöfnur leikmanna Einherja á blað, þær Ainhoa Porcel og Florencia Barraza. Ainhoa leikur fyrir Fjölni á meðan Florencia er í liði Vestri.
Lokatölur urðu 2-2 á Ísafirði og eiga bæði lið sjö stig eftir þrjár umferðir.
Þórey Hanna og Þóra Guðrún gerðu að lokum mörkin í sigri KÞ gegn KFR á Hvolsvelli. KÞ er með fjögur stig eftir sigurinn en KFR er án stiga ásamt ÍR.
Einherji 4 - 0 ÍR
1-0 Florencia De Leon Moreira ('35 )
2-0 Mar Rubio Garcia ('39 )
3-0 Mar Rubio Garcia ('45 )
4-0 Ainhoa Olivera Fernandez ('88 )
Vestri 2 - 2 Fjölnir
0-1 Ainhoa Plaza Porcel ('13 )
1-1 Raniyah Ajanai Marie Burton ('21 )
2-1 Florencia Barraza ('45 )
2-2 Eva Karen Sigurdórsdóttir ('84 )
KFR 0 - 2 KÞ
0-1 Þórey Hanna Sigurðardóttir ('16 )
0-2 Þóra Guðrún Einarsdóttir Briem ('67 )


