Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
banner
   sun 24. maí 2026 16:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Daníel Tristan lagði upp - Tap hjá Brann
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Daníel Tristan Guðjohnsen kom inn á sem varamaður þegar Malmo tapaði 3-2 gegn Vasteras í sænsku deildinni.

Hann kom inn á og lagði upp jöfnunarmark en Vasteras skoraði sigurmarkið í blálokin. Malmö er í 12. sæti með 10 stig eftir 9 umferðir.

Þá spilaði Róbert Frosti Þorkelsson 82 mínútur í 2-1 tapi GAIS gegn Sirius. GAIS er í 8. sæti með 12 stig eftir tíu umferðir.

Íslendingaliðið Brann tapaði 3-1 gegn Bodö/Glimt í norsku deildinni. Jón Dagur Þorsteinsson og Kristall Máni Ingason voru í byrjunarliðinu hjá Frey Alexanderssyni. Brann er í 6. sæti með 13 stig eftir 11 umferðir.


Slapp