Slúðurpakki dagsins er kominn í hús. Rafael Leao, Jarrod Bowen, Alisson, Thiago Silva og fleiri koma við sögu.
Man Utd er í bestu stöðunni til að fá Rafael Leao, 26, en AC Milan vill fá 43 milljónir punda fyrir hann. (Gazetta Dello Sport)
United gæti einnig reynt að fá Jarrod Bowen, 29, ef West Ham fellur. (Football Insider)
Chelsea hefur náð samkomulagi við systurfélagið sitt Strasbourg um kaup á argentíska vinstri bakverðinum Valentin Barco, 21. (Mail)
Alisson Becker, 33, markvörður Liverpool, er tilbúinn að fara til Juventus og endurnýja kynnin við Luciano Spalletti, fyrrum stjóra hans hjá Roma. Jafnvel þótt Juventus mistakist að vinna sér sæti í Meistaradeildinni. (Corriere Dello Sport)
Chelsea vill fá Thiago Silva, 41, fyrrum varnarmann liðsins í þjálfarateeymið sitt. Hann hefur yfirgefið Porto en Milan hefur boðið honum eins árs samning sem leikmaður. (ESPN)
Leeds gæti reynt að fá miðjumanninnum Shea Charles, 22, frá Southampton eftir að norður íranum mistökst að komast í úrvalsdeieldina eftir njósnaskandalinn. (Football Insider)
Jakub Kiwior, fyrrum varnarmaður Arsenal, og núverandi leikmaður Porto er undir smásjá Barcelona. (Sport)
Brighton og Crystal Palace eru meðal nokkurra félaga í úrvalsdeildinni sem vilja fá Arijon Ibrahimovic frá Bayern eftir að hann vakti mikla athygli á láni hjá Hoffenheim.
Aston Villa hefur áhuga á William Osula, 22, en Newcastle vill ekki selja hann eftir að Daninn vann sér sæti í byrjunarliðinu. (Football Insider)
Hakan Safi, forsetaefni Fenerbahce, vill fá enska framherjann Mason Greenwood, 24 ára, frá Marseille, sem hluta af „risapakka“ til að umbreyta félaginu. (Mark, utanaðkomandi)



