Rangers er í viðræðum um kaup á Lawrence Shankland, fyrirliða Hearts.
Rangers vill gjarnan fá þennan þrítuga leikmann til sín áður en hann fer á HM með skoska landsliðinu.
Rangers vill gjarnan fá þennan þrítuga leikmann til sín áður en hann fer á HM með skoska landsliðinu.
Viðræður ganga vel og hann fær tveggja ára samning með möguleika á framlengingu um ár til viðbótar.
Shankland skoraði tuttugu mörk á tímabilinu þar sem Hearts tapaði í úrslitaleik gegn Celtic um skoska titilinn. Hann hefur lengi verið orðaður við Rangers, félagið sem hann studdi í æsku.



