Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
banner
   sun 24. maí 2026 18:56
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu fagnaðarlætin eftir lokaflautin
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það var fagnað dátt eftir lokaflautin í leikjum dagsins í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Englandsmeistarar Arsenal fögnuðu langþráðum titli á Selhurst Park á meðan Sunderland, Bournemouth og Brighton fögnuðu Evrópusætum.

Fagnaðarlætin í Brighton voru súrsæt eftir 0-3 tap á heimavelli gegn Manchester United. Liðið átti möguleika á afar ólíklegu Meistaradeildarsæti fyrir upphafsflautið en á sama tíma gat liðið líka alfarið misst af Evrópu í afar þéttum pakka í efri hluta deildarinnar.

Fögnuðurinn í Sunderland var gríðarlegur eftir frábæran 2-1 sigur gegn Chelsea sem innsiglaði afar ólíklegt Evrópudeildarsæti fyrir lærlinga Régis Le Bris sem eru nýliðar í úrvalsdeildinni.

Bournemouth gerði jafntefli í Nottingham og endaði í Evrópudeildarsæti og voru fagnaðarlætin rólegri hjá þeim enda var sætið tryggt fyrir lokaumferðina.

Að lokum fögnuðu stuðningsmenn Tottenham dátt eftir að hafa lagt Everton að velli til að forðast fall.

Sjáðu fagnaðarlæti Tottenham


Scenes as FC Arsenal lift Premier League trophy
by
u/977x in
soccer



[Sky] Full time scenes at Brighton, Sunderland and Bournemouth as all 3 of them qualified for Europe next season.
by
u/Sparky-moon in
soccer

Slapp
banner