Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
   sun 24. maí 2026 19:56
Ívan Guðjón Baldursson
Sögulegur sigur Torreense í bikarúrslitum
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Sporting 1 - 2 Torreense
0-1 Kevin Zohi ('4)
1-1 Luis Suarez ('54)
1-2 Stopira ('113, víti)
Rautt spjald: Maxi Araujo, Sporting ('109)

Torreense vann afar óvænt portúgalska bikarinn þegar liðið gerði sér lítið fyrir og lagði Sporting CP að velli í úrslitaleiknum í dag.

Torreense leikur í næstefstu deild í Portúgal og er þetta í fyrsta sinn í sögu bikarsins sem lið úr neðri deild vinnur.

Torreense náði forystunni snemma leiks í úrslitaleiknum og fékk Sporting mikið af færum til að jafna áður en Luis Suárez kom boltanum loks í netið í síðari hálfleik.

Sporting var talsvert hættulegra liðið en náði ekki að gera sigurmark svo leikurinn fór í framlengingu. Þar gerðist hið ótrúlega þegar Maxi Araújo gerðist sekur um brot innan vítateigs og dæmdi dómarinn vítaspyrnu og rautt spjald. Stopira skoraði af vítapunktinum á 113. mínútu og reyndist það sigurmarkið.

Torreense skrifaði söguna með þessum sigri en liðið endaði í þriðja sæti í deildarkeppni á markatölu og á því enn möguleika á að komast upp í efstu deild fyrir næstu leiktíð.

Torreense spilar umspilsleiki við Casa Pia, sem endaði í þriðja neðsta sæti í efstu deild, um síðasta lausa sætið í portúgölsku deildinni.

Liðin gerðu markalaust jafntefli í fyrri leiknum á heimavelli Torreense og fer seinni leikurinn fram næsta fimmtudag.


Torreense celebrate after becoming the first ever non-top-division side to win the Portuguese Cup
by
u/atbg1936 in
soccer

Slapp
banner