Ísland mætir Króatíu í lokaleik sínum í riðlakeppni Heimsmeistaramótsins í Rostov á þriðjudaginn.
Þetta verður fimmti leikur þjóðanna frá árinu 2013 þegar þjóðirnar mættust í umspili fyrir Heimsmeistaramótið í Brasilíu. Síðan voru þjóðirnar saman í undankeppni Heimsmeistaramótsins sem nú er í gangi.

„Við höfum mætt þeim oft áður og þeir eru nú þegar komnir áfram úr riðlinum. Þeir eru með stórkostlegt lið. Byrjunarliðið þeirra er í raun ótrúlegt. Þeir ætla að hvíla menn en það breytir ekki miklu því þeir hafa mikil gæði á bekknum líka og leikmenn sem spila með mjög góðum liðum. Ég get ekki séð að það hafi mikil áhrif á þá fyrir utan það að þeir missa einstaklings gæði," sagði Kári Árnason varnarmaður íslenska landsliðsins á fréttamannafundi í morgun.
Hann var síðan spurður að því hvort hann héldi að Króatíu gæti unnið mótið.
„Þetta er "scary" lið þegar maður skoðar það á pappírunum. Þetta eru engar venjulegar stjörnur. Þeir geta unnið hverja sem er á sínum degi. Þeirra möguleikar? Ég veit það ekki en þeir koma til greina sem sigurvegarar."
Athugasemdir