Fyrsti íslenski knattspyrnumaðurinn sem nær því
Landsliðsmaðurinn, Rúrik Gíslason er fimmti Íslendingurinn í sögunni sem nær milljón fylgjendum á Instagram, fyrsti íslenski knattspyrnumaðurinn.
Fylgjandi númer milljón kom seint í gærkvöldi en fylgjendum Rúriks hefur fjölgað hratt frá því að hann kom inn á sem varamaður gegn Argentínu í fyrsta leik Íslands á HM í Rússlandi á laugardaginn fyrir viku.

Hann vakti mikla athygli þegar hann kom inn á, í seinni hálfeik leiksins og eftir það fór boltinn að rúlla.
Eins og fyrr segir er Rúrik fimmti Íslendingurinn sem nær milljón fylgjendum á Instagram. Þau sem náðu þeim áfanga á undan Rúrik voru Björk Guðmundsdóttir tónlistarkona, Hafþór Júlíus Björnsson kraftlyftingamaður og Crossfit meistararnir Katrín Tanja Davíðsdóttir og Sara Sigmundsdóttir.
Miðað við gang mála hjá Rúrik er ansi stutt í að Rúrik verði sá Íslendingur með flesta fylgjendur á Instagram.
Smelltu hér til að sjá Instagram síðu Rúriks.
Athugasemdir