Tólfan hefur sent frá sér tilkynningu fyrir leikinn mikilvæga í Rostov-on-Don í Rússlandi á þriðjudaginn þar sem íslenska landsliðið mætir því króatíska.
Hér að neðan má sjá tilkynningu Tólfunnar í heild sinni.
Var það ekki?
Íslendingar taka yfir Rostov on Don í leik fyrir sögubækurnar. Við ætlum okkur sigur. Þetta er ekki búið fyrr en að bláa hafið syngur.
Við byrjum leikdaginn klukkan 15 á fanfest. Tólfan verður með trommur og Tólfutrall við gosbrunninn inni á fanfestinu. Klukkan 16:20 tökum við yfir fanfest við sviðið, sameinumst og setjum stemninguna í 12ta gírinn. Höldum svo áfram við gosbrunninn til klukkan 18. Það er um 30 mínútna Tólfutölt á völlinn.
Leggjum af stað snemma, með bláan neista í hjarta og vonina að leiðarljósi. Gefum okkar allt í þetta og styðjum liðið alla leið.
Áfram Ísland!
Athugasemdir