Breiðablik og HK/Víkingur áttust við á Kópavogsvelli í kvöld! Allt stefndi í jafntefli þar til Agla María Albertsdóttir skorar sigurmarkið á 93. mínútu leiksins!
„Ég hélt að þetta færi bara jafntefli þetta var rosalegt! Ég veit ekki hvað við áttum mörg skot á markið hún var bara mjög góð markvörðurinn þeirra." Sagði Agla María eftir leik.
„Ég hélt að þetta færi bara jafntefli þetta var rosalegt! Ég veit ekki hvað við áttum mörg skot á markið hún var bara mjög góð markvörðurinn þeirra." Sagði Agla María eftir leik.
Audrey Baldwin var frábær í marki HK/Víkings í kvöld og varði hvert skotið á fætur öðru.
„Hún var að verja eins og skotið frá Selmu sem var bara rétt við stöngina hún átti geggjaðan leik."
„Við skoruðum á 93. mínútu og allt stefndi í jafntefli við vorum í rauninni heppnar að skora og vinna þennan leik." Sagði Agla sem var augljóslega létt að hafa náð þremur stigum úr þessum leik.
Baráttan um efsta sætið virðist ætla vera milli Breiðabliks og Val en þau mætast einmitt 3. Júlí.
„Það er eins gott að klára svona leiki ef við klárum ekki svona leiki þá skipta leikirnir við stóru liðin ekki máli." Sagði Agla María sátt með sigurinn
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan
Athugasemdir