Fundar með stjórnarmönnum á morgun
Njarðvík og Haukar áttust við í sannkölluðum fallbaráttuslag í kvöld á Rafholtsvellinum í Njarðvík þegar flautað var til leiks í 9.Umferð Inkasso deildar karla í kvöld.
Haukar fóru með sigur af hólmi en þeir sigruðu Njarðvíkinga með fimm mörkum gegn einu.
Haukar fóru með sigur af hólmi en þeir sigruðu Njarðvíkinga með fimm mörkum gegn einu.
Lestu um leikinn: Njarðvík 1 - 5 Haukar
„Bara frábært, við áttum þetta inni, það er bara þannig." Sagði Búi Vilhjálmur Guðmundsson þjálfari Hauka eftir leikinn í kvöld.
Það var mikið um baráttu í leiknum og mikið um samstuð, þrátt fyrir að mikil harka hafi verið í leiknum var ekki mikið um að spjöld færu á loft.
„Mér fannst þetta vera bara, jújú það var harka í þessum leik og allt það en þetta snérist í rauninni bara um það bara frá fyrstu mínútu hvort liðið vildi vinna þetta meira og við bara sýndum það og sönnuðum að við vorum bara meira hungraðir í þetta."
Mikið hefur verið rætt um framtíð Búa hjá Haukum en hann hefur verið bráðabirgðar þjálfari Hauka í síðustu leikjum en það gæti mögulega eitthvað verið að fara skýrast þar.
„Nei, ég er bara að fara funda með stjórnarmönnum á morgun og það kemur bara í ljós þá en vona að þetta hafi innsiglað það."
Aðspurður út í hvort það hafi haft einhver áhrif þessi óvissa um hvort hann stýri næsta leik eða ekki hafði hann þetta að segja.
„Nei nei, maður hefur bara notið þess að vera þjálfa strákana og reynt að gera sitt besta og reynt að ná sem mestu út úr liðinu."
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir