Dani Alves skoraði fjórða mark Brasilíu þegar liðið vann 5-0 sigur á Perú í Suður-Ameríku bikarnum, Copa America á laugardag.
Brasilía tryggði sér sigur í A-riðli keppninnar með þessum örugga sigri á Perú.
Dani Alves er orðinn 36 ára gamall og er hann núna elsti leikmaðurinn í sögunni til að skora mark á Copa America; 36 ára og 47 daga gamall.
Dani Alves er fyrirliði Brasilíu á þessu móti.
Hann mun ekki leika áfram með Paris Saint-Germain á næstu leiktíð, það var tilkynnt í gær.
36y 47d - Aged 36 years and 47 days, Dani Alves 🇧🇷 is the oldest Brazilian player to score in a @CopaAmerica game of, at least, the last 96 years. Captain.#CopaAmerica pic.twitter.com/X3xfDsBa5m
— OptaJavier (@OptaJavier) June 22, 2019
Athugasemdir