Rúmenía og Frakkland eru komin áfram úr C-riðlinum á Evrópumóti U21 árs landsliða en mótið fer fram á Ítalíu.
Frakkland og Rúmenía gerðu markalaust jafntefli í kvöld en Rúmenía vann riðilinn með 7 stig á meðan Frakkar fara í umspil með jafnmörg stig.
England og Króatía höfðu ekki um mikið að spila og voru bæði úr leik en liðin buðu til veislu í kvöld.
Liðin gerðu 3-3 jafntefli þar sem Josip Brekalo gerði tvö mörk á meðan Nikola Vlasic, leikmaður CSKA Moskvu, gerði eitt mark. Reiss Nelson skoraði úr vítaspyrnu fyrir England á meðan James Maddison og Jonjoe Kenny gerðu hin mörkin.
Úrslit og markaskorarar:
Frakkland 0 - 0 Rúmenía
Króatía 3 - 3 England
0-1 Reiss Nelson ('11, víti )
1-1 Josip Brekalo ('39 )
1-2 James Maddison ('48 )
2-2 Nikola Vlasic ('62 )
2-3 Jonjoe Kenny ('70 )
3-3 Josip Brekalo ('82 )
Athugasemdir