Njarðvík 1 - 5 Haukar
0-1 Aron Freyr Róbertsson ('16 )
0-2 Fareed Sadat ('25 )
0-3 Alexander Freyr Sindrason ('35 )
0-4 Ísak Jónsson ('45 )
1-4 Ari Már Andrésson ('49 )
1-5 Daði Snær Ingason ('93 )
0-1 Aron Freyr Róbertsson ('16 )
0-2 Fareed Sadat ('25 )
0-3 Alexander Freyr Sindrason ('35 )
0-4 Ísak Jónsson ('45 )
1-4 Ari Már Andrésson ('49 )
1-5 Daði Snær Ingason ('93 )
Haukar unnu sannfærandi 5-1 sigur á Njarðvík í Inkasso-deild karla í kvöld en spilað var á heimavelli Njarðvíkinga.
Njarðvíkingar hafa verið í frjálsu falli í síðustu leikjum en liðið hefur tapað síðustu fjórum leikjum sínum.
Aron Freyr Róbertsson kom Haukum yfir á 16. mínútu áður en Fareed Sadat bætti við öðru. Alexander Freyr Sindrason skoraði svo þriðja markið á 35. mínútu áður en Ísak Jónsson gerði fjórða markið undir lok fyrri hálfleiks.
Ari Már Andrésson minnkaði muninn í byrjun síðari hálfleiks áður en Daði Snær Ingason gulltryggði sigur Hauka.
Lokatölur 5-1 fyrir Haukum sem eru í 9. sæti með 9 stig en Njarðvík er í 11. sæti með 7 stig.
Athugasemdir