Miðvörðurinn Kalidou Koulibaly hefur verið orðaður við Manchester United, Manchester City og Juventus.
Þessi öflugi leikmaður Napoli er núna að taka þátt í Afríkukeppninni með Senegal.
Þessi öflugi leikmaður Napoli er núna að taka þátt í Afríkukeppninni með Senegal.
„Ég veit ekki hvort ég verði áfram hjá Napoli á næsta tímabili, ég held það. En ég einbeiti mér að Afríkukeppninni og eftir það fer ég til baka til Napoli," segir Koulibaly sem er 28 ára.
Senegal vann 2-0 sigur gegn Tansaníu og talaði Koulibaly við fjölmiðla að leik loknum.
„Allir eru að tala um mig en ég tala bara um Senegal. Ég vil afreka eitthvað stórt með þjóð minni."
Athugasemdir