Sergej Milinkovic Savic, leikmaður Lazio á Ítalíu, er á leið til franska stórliðsins Paris Saint-Germain ef marka má fréttir frá Serbíu í kvöld.
Serbneski miðjumaðurinn hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína í Seríu A með Lazio en leikstíll hans svipar til Paul Pogba hjá Manchester United.
Stærstu félög heims hafa sýnt honum mikinn áhuga en franska stórliðið Paris Saint-Germain er við það að landa honum.
Serbneski miðillinn Blic greinir frá því að PSG sé að kaupa hann á 80 milljónir evra en möguleiki er á því að Leandro Paredes fari í hina áttina til Lazio.
Athugasemdir