Félagaskiptaglugginn opnar þann 1. júlí og verður opinn allan júlímánuð.
ÍBV er nú þegar búið að semja við enska framherjann Gary Martin, sem lék síðast með Val. Gary er kominn til Vestmannaeyja og má byrja að spila með liðinu frá og með 1. júlí
Pedro Hipolito, þjálfari ÍBV, var spurður að því eftir tap gegn Breiaðbliki í Pepsi Max-deildinni í gær hvort einhverjir fleiri leikmenn væru á leiðinni til félagsins.
„Við erum að fá Gary Martin og Benjamin. Ef einn leikmaður kemur í viðbót þá er það þannig. Við höfum ekki fjármuni í mikið meira," sagði Pedro.
Pedro talar þarna um Benjamin, en um er að ræða Benjamin Prah frá Gana. Samið var við hann í apríl.
ÍBV er á botninum í Pepsi Max-deildinni með aðeins fimm stig eftir níu leiki.
Það var umræða í útvarpsþættinum Fótbolta.net í gær hvað liðin í Pepsi Max-deildinni í gær. Smelltu hér til að hlusta á hana.
Sjá einnig:
Ágúst: Munum fá inn leikmann í glugganum
Athugasemdir