Roberto Firmino var á skotskónum á laugardag þegar Brasilía vann 5-0 sigur á Perú í Suður-Ameríku bikarnum, Copa America.
Firmino tvöfaldaði forystuna með skrautlegu marki. Markvörður Perú ætlaði að spyrna knettinum fram völlinn en skaut þess í stað í Firmino. Boltinn fór yfir markvörðinn, í stöngina og út til Firmino sem skoraði auðveldlega.
Afgreiðsla Firmino vakti mikla athygli en hann horfði ekki á markið þegar hann setti boltann í netið. Hann tók svokallað 'no look'.
Hann hefur gert þetta nokkrum sinnum áður með Liverpool.
Smelltu hér til að sjá mark Firmino.
We've seen that somewhere before 🚫👀⚽️@LFC's Roberto Firmino scored with a no-look finish for Brazil in the Copa America 🇧🇷 pic.twitter.com/GYIppgjIwi
— Premier League (@premierleague) June 23, 2019
Athugasemdir